Pollar (Puddles)

Varanlegt útilistaverk í Borgartúni 41.

Borgartún 41 stendur við túnfót Laugarnessins þar sem áður rann Fúlutjarnarlækur. Þótt lækurinn sé löngu kominn undir malbik og steypu getur verið að hann lifi enn einhversstaðar í staðarvitundinni. Listaverkið leitast við að vekja minningar um lækinn og sögur hverfisins til lífsins með því að spegla sögur, sagnir og hversdaginn.

Í öllum hverfum býr saga: pískur, frásagnir og orðrómur um eitthvað sem á að hafa gerst. Slíkar sögur, hvort sem þær eru sannar eða tilbúnar, eru órjúfanlegur hluti af takt hversdagsins og móta tengsl íbúa við umhverfi sitt. Sagt er að Hallgerður langbrók sé grafin í Laugarnesinu og að einhver húsa hverfisins séu byggð úr timbri frá Jamestown draugaskipsstrandinu mikla. Einnig er þekkt að þvottakonurnar lentu í miklum hremmingum við að komast yfir Fúlutjarnarlæk á leið sinni í Laugardalinn og drukknaði ein þar undan fargi þvottarins.

Listaverkið samanstendur af þremur skúlptúrum úr ryðfríu stáli, líkt og þrír pollar væru reistir uppá rönd, með fljótandi brotum úr sögunum þrem. Framhlið verkanna er mótuð eins og gárandi vatnsfletir. Yfirborðið er hápólerað og virkar sem spegill, þar sem endurkast sólar dregur upp síbreytilegar myndir eftir breytilegum takti árstíða og sólargangs. Staðsetning verkanna byggir á greiningu á skuggavörpun og ljósi, með það að markmiði að virkja samspil náttúrulegrar birtu og efnis.


Hlutirnir sem fljóta um í pollunum eru greyptir í framhlið verkanna sem teikningar og vísa í sögurnar þrjár; hárlokkur Hallgerðar, drumbur úr Jamestown og tuska úr þvottakörfu hinnar óheppnu þvottakonu. Undirlag teikninganna er ópússaður flötur stálsins og því mattur sem skapar öðurvísi endurvarp en hápóleraði flöturinn.


Verkið leitast við að tengja saman nýja byggð og eldri í gegnum það sem annars er ósköp hversdagslegt, pollar. Verkið vísar í munnmælasögu hverfisins og leitast við að vera lifandi verk í garði íbúa.

Verkið var unnið að undangenginni samkeppni Listasafns Reykjavíkur. Stálsmíði var í höndum Ísleifs Friðrikssonar.